fimmtudagur, desember 01, 2005

Shit Scheisse Merde

Jæja...Þá hefst prófvertíðin alræmda. Er ég 6 prófum á 14 dögum sem mér finnst ekkert svakalega góð nýttni. Er búinn að vera að læra eithvað fyrir LÍK* prófið sem verður rosalegt búgí stuð. Annars er ég líka búinn að vera að svindla eithvað og kíkja á smásögur fyrir ENS** prófið þar sem ég hef mjög takamarkaðan tíma að læra þar sem amma gamla er 79 ára í dag og það verður úberdjamm í elliblokkinni hennar.

Annars er ég bara fínn. Hlakka til þegar þetta gengur yfir. Þá er bara að klára Big Kahuna plötuna og, ef að allt gengur upp samkvæmt áætlun, byrja á Hello Norbert plötunni. En hvernig mundi fólk fýla ef að Big Kahuna "platan" mundi koma út á kasettu? Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hefur kasettann allveg dottið út úr hugum okkar allra. Kasetturnar voru víst rosalega töff þegar þær komu fram og þóttu bylting því þær voru mun fyrirferðaminni heldur en 12" vínyl plöturnar og fólk gat tekið upp á þær án þess að eiga 5 milljónkróna græjur sem tóku 3 bílskúra. Og núna þar sem öllum finnst vínyl plötur rosalega hipp og kúl (sem þær eru, ekki miskilja mig) afhverju eru þá kasetturnar ekki hipp og kúl? Það eiga ALLIR kasettu tæki sem það hefur ekkert not fyrir en það eiga mjög fáir vínyl spilara í lagi.



Plötur dagsins:
Stereolab - Dots and Loops
New Order - In Session
Bright Eyes - Jólaplatan

*líkamsrækt
**enska

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

halló halló hafnafjörðu!
kassettur eru sooo in! vissiru það ekki?.. ég er allvegana að leita mér að vasadiskói, ef þú veist um.. mig eiginlega bráð vanntar...
en ég vil samt að BK platan komi líka út á disk.. en ég mundi samt örugglega kaupa bæði geisladiskinn og kassettunna..
takk..

Albert sagði...

Afhverju viltu að hún komi út á disk?

Halldór sagði...

Fokk the system burt með diskinn oginn með kasettuna, ef þú vilt hlusta á Bíkey kauptu þér þá kasettutæki. I love it.

Nafnlaus sagði...

hahaha...
Albert:... bara... er það ekki nóg?
hugsaðu bara um öll ríku börnin sem eru lööööngu búin að henda kassettu-tækjonum sínum og sitja nú uppi með geisladiska spilara... nei, ég bara bið þig...

Nafnlaus sagði...

Það væri alvegt töff og allt það að gefa þetta út á kasettu.Myndi líka eflaust spara ykkur einhverja tíkalla er það ekki?
En svo kemur uppá móti vesen fyrir almenningin, semsagt í kringum Ipod mál og svoleiðis og eins og allir vita þá er mun auðveldara að skipta um lög á geisladisk heldur en kasettu.. Já, allavega.