fimmtudagur, maí 25, 2006

brake down baby

Gott kvöld

Seinustu dagar hafa verið frekar þungir, þar á meðal minn eigin afmælisdagur. En það er bara skemmtilegt. Því á eftir þungum dögum koma góðir dagar og með góðum dögum kemur góð mússík:

Dj Shadow vs. Cut Chemist

shadow vs. chemist

Það kannast allir við hinn fáránlega súper svala Josh Davis, Dj Shadow, ýmist fyrir tímamóta instrumental hip-hop plötu sína Entroducing..., trip-hop side-project hans og James Lavelle, U.N.K.L.E., eða einhverja af hans fjölmörgu mixteipum eða remixum. Cut Chemist er ekki slæmur heldur. Hann hefur gefið út þó nokkur heeeevvvví mixteip ásamt því að vera meðlimur í West-Coast funk-rapp bandinu Jurassic 5. Á plötunni Brainfreeze koma þeir félagar saman, ekki í fyrsta skipti, og mixa saman eldgömlum og sjaldfundnum 45 og 33 snúningum ásamt þeirra eigin dóti. Skilar þetta sér í einu besta hip-hop mixi allra tíma og ekki var það verra að þessi plata er illfáanlega sökum mjög takmarkaðs upplags. En hún kom út 1999 hjá Sixty7 og gef ég sjálfum mér leyfi að pósta allri plötunni. Ef ykkur líkar við þetta tjékkið þá á Product Placements með þeim félögum sem kom út 2001.

Dj Shadow vs. Cut Chemist – Brainfreeze (Part 1)
Dj Shadow vs. Cut Chemist – Brainfreeze (Part 2)

Lupe Fiasco

Lupe Fiasco

Lupe Fiasco mun gefa út plötuna Food and Liqour í júlí á þessu ári og boða fyrstu hlustannir efnivið í millistóra rappstjörnu. Ef ég vissi ekki betur þegar ég heyrði þessa plötu þá mundi ég halda að Kanye West ætti yngri bróðir og mér finnst hún líða dálítið fyrir það hversu lík hún er verkum West. En þess má með gamni geta að Lupe rappar einmitt á Touch the Sky af Late Registration með Kaney West. En aftur af plötunni, hún angar öll af big-band og sinfóníulegum sömplum ásamt úber mjúkum og grúví hip-hop bítum og textarnir snerta oft á sætum málefnum. Tökum t.d. bara fyrsta smáskífu lagið Kick Push, það fjallar um strák sem var ekkert svo góður að skeita en síðan nær hann að lenda fyrsta Kickflippinu sínu og þaðan var ekki aftur snúið en yfirvöld voru alltaf að banna honum að skeita. Mjög fallegt lag....

Lupe Fiasco – Kick Push

Love Will Tear Us Apart



Love Will Tear Us Apart með Joy Division er með betri lögum sem samin hafa verið (IMHO...lol) og þykir mér einkar skemmtielgt að leita uppi ábreiður af þessu fáránlega frábæru lagi. Það kom út í Apríl mánuði 1980 og nokkrum vikum seinna fyrirfór Ian Curtis, söngvari hljómsveitarinnar, sér.Ég á nokkrar frekar áhugaverðar og ætla ég að deila nokkrum þeirra með ykkur. Sú fyrsta er með hljómsveitinni Fall Out Boy sem er kanski einna helst þekkt fyrir sinn kraftmikla, ærslafulla og illskiljanlega flutning á síðan massíva númeri Suggar We’re Going Down.

Fall Out Boy – Love Will Tear Us Apart

Heldur hefðbundin útgáfa þeirra félaga. Næsta útgáfa er hinsvegar mun meira spennandi en hún er með eyðimerkur töffurunum í Calexio. Þarna leika þeir á alls oddi á aðeins einum hljómi allt lagið og verð ég að segja fyrir minn smekk að það er geðveikt. Þetta lag má finna á safnplötunni Sweetheart: Love Songs sem Universal gaf út 2004 í samvinnu við Starbucks og inniheldur, ásamt þessu lagi, m.a. flutning Rufus Wainwright á My Funny Valentine og Neko Case af Buckets of Rain.

Calexio – Love Will Tear Us Apart

Að lokum ætla ég að henda inn útgáfu skosku hljómsveitarinnar Bis. Þau gáfu út þessa útgáfu á japanskri útgáfu plötu þeirra Return to Central frá 2001. Elektró búggí og sumar

Bis – Love Will Tear Us Apart


Parts & Labor

pandl

Eins og almenningur veit þá er fátt fallegra en vel bjagaðir, layer-aðir gítarar og hljómborð og þess vegna er ég að fýla nýjustu plötu Brooklyn bandsins Parts & Labor sem ber nafnið Stay Afraid. Hljómsveitin er tríó og var stofnuð 2002 af Dan Friel og B.J. Warshaw en þeir unnu báðir á hinum sögufræga tónleika stað the Knitting Factory í New York. Tónlist þeirra minnir mig á samblöndu af Lighting Bolt og Blink 182 í raftækjaverslun. Ekki slæmt. En allavega heitir þetta lag New Buildings og er á áðurnefndri plötu Parts & Labor sem er þriðja plata hljómsveitarinnar en sú fyrsta fyrir útgáfufyrirtækið Jagjaguwar sem inniheldur nú þegar hljómsveitir á borð við Black Mountain, Okkervil River og Pink Mountaintops.

Parts & Labors – New Buildings


Látum þetta gott heita í bili

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hlustaði á fyrri partin af DJ Shadow dótinu, frekar feitur. ekki hann, eða þú veist hvað ég meina.
mér finnst Lupe, svo T.Ö.F.F. ég fýla feitt svona lúðra hiphop. pííínu old school í þessu. ég verð líka ástfangin af öllum sem syngja um að skeita.
...sorry, en ég gerðist ekki svo frökk að hlusta á Falloutboy koverið. hlustaði hinsvegar á hin tvö, og líkaði vel. en nú verð ég að fara, svo Parts & labour verður að bíða betir tíma... ekki það að ég hafi ekki heyrt það áður... þúst...

hallssonur sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
hallssonur sagði...

ívar, ég elska hvað þú ert hreinskilinn og þú ert eini maðurinn á móðir jörðu sem ert nógu svalur til að viðurkenna þegar þú ert að pósa eða segist vilja fíla eitthvað sem þú fílar ekki, í stað þess að þykjast fíla það (þess má geta að ég er ekki að skjóta á neinn með þessu, en það hafa allir einhverntíman sagst fíla eitthvað sem þeir fíla ekki). en ég á eftir að hlusta á þetta allt saman fyrir utan Brainfreez sem er suddalega svalt mix og part 2 með cut chemist finnst mér eiginlega feitara þó hitt sé það líka

glamurgella.blogspot.com sagði...

Þið eruð öll lúðar. Nema kannski Ívar, hann er einlægur.

glamurgella.blogspot.com sagði...

Þið eruð öll lúðar. Nema kannski Ívar, hann er einlægur.

Nafnlaus sagði...

farðu að skrifa eitthvað tónlistar thing á bloggið, það er áhugavert!