mánudagur, febrúar 27, 2006

Fríða og Dýrið

Mogwai - Mr. Beast (Matador)

Gott kvöld góðir hálsar. Ég er kominn með leið á því að blogga um hvað ég geri dagsdaglega, því að ég geri ALDREI neitt merkilegt. Ég á enga vini og lifi mjög innihaldstómu lífi fyrir framan sjónvarpið og tölvuna, meðan líkaminn safnar í bumbu. Hinsvegar langar mig afskaplega mikið að æla nokkrum orðum út úr mér um plötu sem var að koma út ekki alls fyrir löngu. Um er að ræða Mr. Beast, fimmtu hljóðverskífu Skosku Post-Rock (síð-rokk) kónganna í Mogwai.

Síð rokkið komst á sjónarsviðið í byrjun 10unda áratugarins, þá í mynd plötunnar Spiderland með Slint og Laughing Stock með hljómsveitinni Talk Talk. Um var að ræða tilfiningaþrungið, oft tregablandið, rokk með svífandi djazzáhrifum og viðeigandi hljóðskúlptúrs- og taktpælingum. Þessar plötur urðu síðan megin stöplar tónlistarstefnunar sem við köllum nú Post-Rokk, með hljómsveitir á borð við Tortoise, Godspeed Your Black Emperor!, Unwound, Flying Saucer Attack og MOGWAI.

Allavega. Á þessari plötu er EKKERT nýtt. Platan hljómar mjög svipað og fyrirverar sínir. Hún er ljúf á hlustunnar. Lögin með svipaða uppbyggingu, gítar dútl til að byrja með, ride cymbalar notaðir eins og sóláburður á Spáni og ósungnar raddir (oft á franskri tungu) hljóma yfir lögin. Allt byggist þetta upp þangað til þetta er umþaðbil að sjóða en stemmir sig aftur niður (oftast nær allavega). Mjög smekklegt. EN. Þrátt fyrir engar nýjungar, nema kanski 2 upphafslögin, er þetta skemmtielg plata. NÁKVÆMLEGA eins og post-rokk á að vera. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að post-rokk formið fæddist jafn andavana og diskóið svo að við getum ekki búist við nýjungum, í mesta lagi nýjum tækni undrum. En annað hvort fýlar þú síð-rokk eða ekki. En í heildina litið er Mr. Beast með Mogwai skemmtileg plata, ljúfsár en íhaldsöm.............



Nú ætla ég meiri að segja að vera svo hallærislegur að henda á hana einkunn. Frá 0 til 10 fær Dýrið 7.1, sem verður að teljast góð einkunn fyrir post-rokk plötu.

Hápunkar: Glasgow Mega-Snake og Acid Food.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

áttu ekki vini.. HAH! þú ert þúst vinsælasti gaurinn í mh eða eitthvað!
OMG..
nei ég lýg..
þú átt einga vini það er satt..

Nafnlaus sagði...

Það er satt Arnór. Þú gætir reddað þér einni bara með að smella fingrum og taka niður gleraugun og blikka með þessu fallegu brúnu steinum.

Þetta kvennaleysi fer með mann, allveg viss að allir í Mogwai séu kærustu- og vinalausir.

Nafnlaus sagði...

eru þið glataðir eða hvað?
hættið að væla! (svona er að vera emo)
ef þetta er svona mikið mál að þá skal ég vera kærastan ykkar allra!
...eða kannski bara svona cyber-girlfriend... svo geti þið bara svona ráðið hvernig ég er...hvað hlusta á... í hverju ég geng...
hvernig líst ykkur á?

Nafnlaus sagði...

Ég var akkúrat að hlusta á þessa plötu í gær og mér finnst hún bara svona nokkuð ágæt en fremur lík öllu hinu dótinu

Nafnlaus sagði...

hehe mér finnast þetta mjög skemmtilegar umræður um kærustuleysi, hef heyrt þær oft nema um kærastaleysi.
Þar sem ég er árinu eldri vorkenni ég ykkur bara semí en vorkenni mér helling.
een ég er sammála gló hættið að væla og náið ykkur í stelpur, þær vilja láta reyna við sig svo hættið að grenja á internetinu and go get them tigers=)

Nafnlaus sagði...

*dæs*...þá það ívar, ég ræð víst ekkert við það.
en drullaðu þér þá af rassgatinu og gerðu eitthvað í því!

takk fyrir.

Nafnlaus sagði...

Ívar ég veit um fullt af stelpum sem eru skotnar í þér. Svo ef allt bregst geturðu alltaf talað við Bryndísi...

Nafnlaus sagði...

þið eruð nú meiri aumingjarnir... mogwai eru allir með tattoo og eiga allir kærustu nema bassaleikarinn en hann hefur átt þrjár. þeir segja mömmu sinni að halda kjafti (eins og ég, og siggi líka) og lyfta lóðum

Nafnlaus sagði...

djöfull er ég harður yeah